Blábankinn á Þingeyri er vistkerfi sem styður fólk sem vill skapa sjálfbær tækifæri fyrir þorpið og heiminn.
Þar er aðstaða fyrir minni og stærri viðburði en einnig vinnu- og fundaraðstaða.
Blábankinn er sjálfseignarstofnun sem var stofnuð í júní 2017 af þremur aðilum; Vestinvest, Ísafjarðarbæ og Simbahöllinni. Blábankinn var stofnaður til að bregðast við niðurskurði á þjónustu í þorpinu og stuðla að atvinnusköpun.
Markmið Blábankans:
- Skapa alþjóðlegan vettvang fyrir nýsköpun og sjálfbærni.
- Vera fyrirmynd fyrir nýsköpunar- og samfélagsmiðstöðvar.
- Auka lífsgæði fólks á Þingeyri.
Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Blábankans.