Lagt er af stað frá Tankinum og gengið inn fjörðinn. Gengið er í fjörunni og stígurinn því ekki fær á flóði. Á leiðinni er að finna fræðslustöðvar um náttúru og lífríki fjarðarins ásamt skemmtilegum þrautum fyrir alla fjölskylduna. Stígurinn endar við sellátrið þar sem Þingeyrarselirnir halda til en mikilvægt er að fara hljóðlega og ekki of nærri selunum til að trufla þá ekki. Þrautahefti má nálgast í Koltru eða Hamonu.