Draugshorn er áberandi hyrna innst í Galtardal en þar er sagður hafa verið bústaður trölla á fyrri tíð enda örstutt í tröllaskrefum í Tröllakika, fremst á Tjaldanesdal í Arnarfirði. Nokkur ganga er frá veginum, en stutt keyrsla með ágætum jeppa eða vélsleða.
Þegar horft er á hyrnuna úr dalnum, þá skal taka stefnuna til vinstri við tindinn og koma aftan að honum. Þetta er tiltölulega auðveld ganga. Þegar upp er komið er hægt að velja um að skíða sömu leið niður, sem ætti að vera tiltölulega einfalt fyrir flesta, eða skíða niður eitthvert gilið á framhliðinni. Seinni kosturinn er aðeins fyrir mjög vant skíðafólk.