Fjallaskíði – Hólafjall

Aðeins fyrir fólk sem er mjög vant fjallaferðum að vetri til.

Flott vorleið í flottu Alpaumhverfi. Sú leið sem hér var farin var ekki upp á fremsta hluta Hólafjalls, heldur fer hún upp Stekkjargil sem er aðeins innar í Kirkjubólsdalnum.

Gott er að fá leyfi ef bíl er lagt við heimreiðina á Kirkjubóli en þá sleppa ferðalangar við frískandi fótabað í Kirkjubólsá, en ef bíl er lagt í nágrenni við Múla þá fæst slíkt bað skíðafólki að kostnaðarlausu.

Deila: