Á Íslandi er strandblak í örum vexti og eru nú um 40 strandblakvellir staðsettir víðsvegar um landið. Einn af bestu völlum landsins má finna á Þingeyri á íþróttasvæðinu en nálgast má græjur í sundlauginni.
Strandblaksmót
Hefð hefur skapast fyrir því að Íþróttafélagið Höfrungur haldi Stigamót 3 sem er hluti af mótaröð Íslandsmeistarakeppninnar í strandblaki. Mótið fer að jafnaði fram í júlí og hefur verið haldið í hartnær 20 ár.
