Balinn – listarými

Yfirgefin hús eða eyðibýli hafa mikið aðdráttarafl, hvort sem um ræðir óheflaða fegurð eða einhverja dulúð. Í Balanum gefst tækifæri til að stíga inn í hús, sem stendur kalt og hrátt án rafmagns og rennandi vatns.
Ef þú heimsækir Þingeyri í sumar skaltu endilega kíkja í listarýmið Balann þar sem fortíðin og nútíminn mætast í listinni.
Strandblak

Á Íslandi er strandblak í örum vexti og eru nú um 40 strandblakvellir staðsettir víðsvegar um landið. Einn af bestu völlum landsins má finna á Þingeyri á íþróttasvæðinu en nálgast […]
Kómedíuleikhúsið

Kómedíuleikhúsið er fyrsta og eina atvinnuleikhús Vestfjarða, stofnað 1997. Leikhúsið hefur sett á svið 45 leikverk sem eiga það flest sameiginlegt að tengjast sögu Vestfjarða á einn eða annan hátt.
17. Söguganga um Þingeyri

Kort og upplýsingar fást í Hamónu og Koltru.
16. Náttúrustígur í fjörunni – fyrir alla fjölskylduna

Lagt er af stað frá Tankinum og gengið inn fjörðinn. Gengið er í fjörunni og stígurinn því ekki fær á flóði. Á leiðinni er að finna fræðslustöðvar um náttúru og […]
15. Hrafnseyrarhringur – hjólaleið

6 – 8 tímar -hækkun um 1000 m.
14. Svalvogahringurinn – hjólaleið

6 – 8 tímar -hækkun 550m.
13. Keldudalur – Stapadalur

7 – 9 tímar.
12. Mýrafell (312m)

2 – 2,5 tímar – hækkun 250m.
11. Sandafell – útsýnisskífa (367m)

1,5 – 2 tímar – hækkun 170m.